Fréttir

Aðalfundur iðjuþjálfafélags Íslands - fundarboð

22.2.2017

Fundarstaður:  Fundarsalurinn á 3. Hæð að Borgartúni 6, Reykjavík

Tímasetning:    9. mars 2017, kl. 16:30-18:00

Dagskrá:

a)  Skýrsla stjórnar
b)  Endurskoðaðir reikningar félagsins kynntir og bornir undir fundinn
c)  Lagabreytingar
d)  Fjárhagsáætlun stjórnar kynnt og ákvörðun félagsgjalds
e)  Umræður um skýrslur fastra nefnda
f)  Kosning
            - formanns,
            - fulltrúa í stjórn
            - fulltrúa í fastar nefndir
            - fulltrúa í félagasamtök sem IÞÍ á aðild að
            - tveggja skoðunarmanna reikninga
g)  - Skipan stjórnar fræðslusjóðs tilkynnt
      - Skipan stjórnar siðanefndar  tilkynnt 

      - Skipan stjórnar fræðilegrar ritnefndar tilkynnt
h) Önnur mál

Aðalfundargögnin verða á heimasíðu IÞÍ á innri vef jafnskjótt og þau berast.