Fréttir

 Ný hugsun og þróun í heimaþjónustu í hinum vestræna heimi

13.8.2014

Ráðstefna um samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu 3. október 2014, Nauthóll, Reykjavík

Öll Norðurlöndin hafa mótað stefnu byggða á þeirri sýn að sem flestir geti búið á eigin heimili, óháð aldri, heilsufari og fötlun. Því hefur samþætt þjónusta við fólk á heimilum sínum aldrei verið mikilvægari en nú.

Á ráðstefnunni verður skoðuð reynsla Norðurlandanna af samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu og lagt mat á hvernig hún mætir þörfum notenda, dregur úr stofnanaþjónustu og hvort um sé að ræða fjárhagslegan ávinning af henni. Kynnt verða fyrirmyndarverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlöndunum.

Ráðstefnan er hluti af viðburðaröð velferðarráðuneytisins á sviði félags- og heilbrigðismálavegna formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni á árinu 2014. Ráðstefnan er öllum opin og gjaldfrjáls, en skráningar er krafist á http://registration.yourhost.is/forms/nuih2014/skraning.php

Erindi á ráðstefnunni eru á ensku og skandinavísku. Sjá dagskrá á vef velferðarráðuneytis, http://www.velferdarraduneyti.is/formennska2014/nr/34738

Með kveðju,
Sigríður Jónsdóttir.
---------------------------------------------------------------------------------------------

Sigríður Jónsdóttir, sérfræðingur / Senior Advisor Skrifstofa gæða og forvarna / Department of Quality and Prevention Velferðarráðuneytið / Ministry of Welfare Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, IS-150 Reykjavík, Iceland Sími / tel.: (+354) 545 8100, fax: (+354) 551 9165 sigridur.jonsdottir@vel.is / velferdarraduneyti.is