Fréttir

CAT-kassinn og CAT-appið

18.8.2016

Námskeið í Menningarmiðstöðinni GerðubergiGerðubergi 3-5, 111 Reykjavík, 
mánudaginn 12. september 2016, kl. 9:00-15:30
  • Fræðsla um notkun CAT-kassans
  • Myndbönd með dæmum um notkun
  • Þjálfun í að nota gögn CAT-kassans
  • Kynning á CAT-appinu

Kennarar:
Ásgerður Ólafsdóttir, sérkennari og einhverfuráðgjafi og
Sigrún Hjartardóttir, leikskólasérkennari og einhverfuráðgjafi

CAT-kassinn kom út í íslenskri þýðingu þeirra tveggja í júní 2005. Hægt er að panta CAT-kassann af heimasíðu CAT: www.cat-kit.com.

CAT-appið hefur nú verið þýtt á íslensku og verður aðgengilegt innan skamms.

Námskeiðsgjald: kr. 25.000.

Innifalið: Léttur hádegisverður, kaffi og meðlæti, námskeiðgögn.

Skráning: asgol@icloud.com eða sighjart@ismennt.is

Við skráningu þarf að taka fram nafn, kennitölu og heimilisfang greiðanda. Einnig er gagnlegt að þátttakendur taki fram hvar þeir starfa. Skráning þarf að fara fram sem fyrst, í siðasta lagi viku fyrir námskeið. Greiðsluseðlar verða sendir nokkrum dögum fyrir námskeiðið.