Fréttir

Öll störf eru kvennastörf

7.3.2017

BHM er meðal aðstandenda hádegisverðarfundar sem haldinn verður í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars nk. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 11.45 til 13:00.

Þátttakendur:

  • Auður Magnúsdóttir, formaður Samtaka kvenna í vísindum
  • Ágústa Sveinsdóttir, fulltrúi átaksins #kvennastarf
  • Birna Björnsdóttir, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður
  • Eva Björk Sigurjónsdóttir, fulltrúi Félags kvenna í karllægum iðngreinum
  • Eyrún Eyþórsdóttir, lögreglumaður
  • Lára Rúnarsdóttir, formaður Félags kvenna í tónlist

Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona stýrir umræðum.

Matarmikil súpa, nýbakað brauð og kaffi á 2.500 kr.

Að fundinum standa: Alþýðusamband Íslands - ASÍ, Bandalag háskólamanna - BHM, BSRB, Jafnréttisstofa, KÍ Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja - SSF.

Hægt er að skrá þátttöku á Facebook-viðburði sem settur hefur verið upp.