Fréttir

Færðu samninganefnd ríkisins heimabakaða köku

21.1.2020

BHM-félög skora á ríkið að leita lausna sem báðir aðilar geti unað við!

Fulltrúar ellefu aðildarfélaga BHM færðu samninganefnd ríkisins heimabakaða köku á samningafundi aðila í morgun. Með þessu vildu félögin, sem eru í samfloti í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið, hvetja viðsemjandann til dáða en viðræðurnar hafa nú staðið yfir í tæpa 10 mánuði og lítið þokast í samningsátt. Fundurinn í morgun var sá 42. í röðinni.
Leitað verði lausnaFélögin ellefu telja að þær launahækkanir sem ríkið hefur boðið séu ófullnægjandi. Þá geta félögin ekki sætt sig við að félagsmenn greiði fyrir styttingu vinnuvikunnar með lækkun á yfirvinnutaxta og sölu kaffi- og matarhléa, líkt og ríkið hefur boðið. Að mati félaganna er þetta ekki til þess fallið að draga úr vinnutengdri streitu og álagi. Þvert á móti er hætta á að tíðni veikinda hjá starfsfólki aukist með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkisstofnanir og samfélagið allt.
Félögin ellefu eru: Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag lífeindafræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands