Fréttir
Stytting vinnuvikunnar
Fyrsta skrefið til að stytta vinnuvikuna í dagvinnu er að stofna vinnutímanefnd sem annast undirbúning breytinga og leiðir samtalið á vinnustaðnum.
Fulltrúar starfsfólks og stjórnendur velja fólk í vinnutímanefndir sem endurspegla vinnustaðinn, ólíka hópa og vinnufyrirkomulag innan hans.
Tryggja skal að öll heildarsamtök launafólks eigi að minnsta kosti einn fulltrúa í nefndinni, ASÍ, BHM, BSRB, FL og FSL, að því gefnu að starfsmenn séu félagsmenn í aðildarfélögum þessara heildarsamtaka.
Nánari upplýsingar um ferlið má finna hér: https://betrivinnutimi.is/verkfaerakista/
Mikilvægt er að hafa í huga að þetta er samvinnuverkefni stjórnenda og starfsmanna.