Iðja, heilsa og velferð - Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi

Þessi bók er fyrsta fræðilega ritið um iðjuþjálfun á íslensku og sem lýsir því hvenig alþjóðlegir straumar í faginu, þekking og fræði endurspeglast í íslenskum veruleika.Hér má lesa hvernig iðjuþjálfar hugsa, hvað þeir gera og hvað mótar störf þeirra og faglegar áherslur. 

Bókin gefur innsýn í:

  • Sögu iðjuþjálfunar og hvert fagið stefnir
  • Hugmyndir og fræðasýn iðjuþjálfunar
  • Aðferðir og verklag iðjuþjálfa í starfi
  • Helstu áherslur og viðfangsefni iðjuþjálfa með ákveðnum hópum notenda og á mismunandi starfsvettvangi.

Fjórtán iðjuþjálfar rita í bókina, hver og einn sérfræðingur á sínu sviði.
Bókin er ætluð nemum í iðjuþjálfun, starfandi iðjuþjálfum og öðru fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Lögð er áhersla á að veita heildstæða sýn á samspil einstaklings, umhverfis og iðju, og auk þess aðgengilegar og áhugaverðar upplýsingar sem gagnast almennum lesendum.
Ritstjórar eru Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson

Bókin fæst í helstu bókabúðum

Til baka Senda grein