Fréttir

Hlé á kjaraviðræðum

28.6.2019

Kjarasamningar aðildarfélaga BHM við ríkið losnuðu 1. apríl síðast liðinn. Í lok júní lagði samninganefnd ríkisins (SNR) til að gert yrði hlé á kjaraviðræðum í júlí og að viðræðuáætlanir yrðu endurskoðaðar með tilliti til þess. Formenn BHM-félaganna hafa nú undirritað endurskoðaðar viðræðuáætlanir við SNR. Alls 21 aðildarfélag BHM fer með samningsumboð við SNR fyrir hönd félagsmanna sinna.

Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á viðræðum við SNR mun ríkið greiða starfsfólki sínu eingreiðslu að upphæð kr. 105.000 þann 1. ágúst 2019. Greiðslan er hluti af kostnaðarmati væntanlegra kjarasamninga sem þýðir að hún mun koma til frádráttar mögulegum afturvirkum launahækkunum frá 1. apríl. Með greiðslunni eru hins vegar ekki lagðar línur um væntanlegar launahækkanir í samningunum en sem kunnugt er hafa BHM-félögin hafnað flötum krónutöluhækkunum.

Aðildarfélög BHM sem eiga í kjaraviðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) hafa einnig undirritað endurskoðaðar viðræðuáætlanir og gert hlé á viðræðum í júlí. SNS fer með samningsumboð í kjaraviðræðum fyrir öll sveitarfélög í landinu nema Reykjavíkurborg. Í endurskoðuðum viðræðuáætlunum aðildarfélaga BHM við SNS er kveðið á um tvær eingreiðslur til starfsfólks sveitarfélaganna: kr. 100.000 til útgreiðslu 1. ágúst 2019 og kr. 80.000 til útgreiðslu 1. nóvember 2019. Stefnt er að því að ná samningum fyrir 15. nóvember 2019. Starfsfólk sem á aðild að stéttarfélögum sem eru utan starfsmats fær eingreiðslu að upphæð kr. 132.000 þann 1. ágúst næst komandi og stefnt er að því að ljúka kjarasamningum fyrir þann hóp eigi síðar en 15. september næst komandi.

Aðildarfélög BHM sem eiga í kjaraviðræðum við Reykjavíkurborg hafa einnig samið um viðræðuhlé fram í ágúst og undirritað endurskoðaðar viðræðuáætlanir. Samkvæmt þeim er stefnt að því að kjarasamningar náist eigi síðar en 15. september 2019. Reykjavíkurborg mun greiða starfsfólki sínu eingreiðslu að upphæð kr. 105.000 þann 1. ágúst 2019. Greiðslurnar frá SNS og Reykjavíkurborg eru einnig hluti af kostnaðarmati væntanlegra kjarasamninga og koma því til frádráttar mögulegum afturvirkum launahækkunum.

Upphafleg frétt af www.bhm.is