Fréttir

Kulnun og bjargráð kvenna

7.10.2019

Næstkomandi mánudag, 14. október kl. 14-16, mun Sirrý Arnardóttir flytja síðdegisfyrirlestur á vegum BHM um viðtalsbók sína Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný. Í bókinni ræðir Sirrý við konur sem hafa kiknað undan álagi – „klesst á vegg“ – en náð bata aftur. Meðal annars spyr hún hvað hafi valdið þessum áföllum áfallinu og hvað hafi orðið konunum helst til bjargar og gert þeim kleift að fá aftur starfsorkuna og lífsgleðina. Í fyrirlestri sínum mun Sirrý ræða efni bókarinnar, lesa upp valda hluta úr henni og síðan leiða almennar umræður um kulnun, örmögnun, álag, samanburð, sítengingu, vinnutíma og bjargráð kvenna.

Fyrirlesturinn fer fram í húsakynnum BHM, Borgartúni 6 í Reykjavík (4. hæð).

Vinsamlegast athugið að sætafjöldi er takmarkaður og skrá þarf mætingu fyrirfram á vef BHM (smellið hér). Opnað verður fyrir skráningu kl. 12:00 á hádegi þriðjudaginn 8. október – fyrst koma, fyrst fá!

Athugið einnig að fyrirlestrinum verður streymt á streymissíðu BHM (smellið hér).