Fréttir

Kynningar- og fræðslufundir um lífeyrismál fyrir virka sjóðfélaga LSR

8.5.2019

Árlega eru haldnir kynningar- og fræðslufundir fyrir virka sjóðfélaga í A- og B-deild LSR í húsnæði LSR að Engjateigi 11.

Tilgangur fundanna er að fræðast um lífeyrismál; um uppbyggingu réttindakerfisins, iðgjaldaskil, lífeyristökualdur og áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Fundir á árinu 2019 eru eftirfarandi:
20. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í B-deild LSR.
21. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í A-deild LSR.
22. maí fyrir sjóðfélaga sem greiða í A-deild LSR.

Boðið er upp á tvær tímasetningar; kl. 8:30 - 10:00 og kl. 16:30 - 18:00.

Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn með því að hringja í síma 510 6100 eða með því að senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu.