Fréttir

ESI og OTIPM námskeið

24.1.2015

Fagráð iðjuþjálfa á Landspítala í samvinnu við Iðjuþjálfafélag Íslands hélt tvö þriggja daga námskeið dagana 7.-9. og 14.-16. janúar s.l. Námskeiðin sóttu 38 iðjuþjálfar víðs vegar af landinu. Á fyrra námskeiðinu var fjallað um mælitækið Evaluation of Social Interaction (ESI) sem notað er til að meta samskipti einstaklinga við ýmis tækifæri og er það næmt fyrir breytingum samskiptaþátta. Á síðara námskeiðinu var fjallað um þjónustuferlið Occupational Therapy Intervention Process Model (OTIPM).

Leiðbeinandi á námskeiðunum var bandaríski iðjuþjálfinn Anne G. Fisher ScD,OT, FAOTA sem er flestum iðjuþjálfum kunn fyrir verk sín. Auk kennslunnar vann hún að rannsóknarverkefnum með Guðrúnu Árnadóttur sérfræðingi í iðjuþjálfun og umsjónarmanni þjónustu- og rannsóknarverkefna í iðjuþjálfun á LSH.

Meðfylgjandi eru svipmyndir frá námskeiðunum.