Fréttir

Skýrsla: Iðjuþjálfun borgar sig!

Norrænt samstarf

15.5.2020

Iðjuþjálfafélag Íslands hefur í samstarfi við félög iðjuþjálfa á hinum Norðurlöndunum og fræðimenn innan fagsins tekið saman skýrslu um virði iðjuþjálfunar út frá heilsuhagfræðilegu sjónarhorni. 

Skýrslan Occupational Therapy and Health Economics – A short introduction to health economics and economic evidence for occupational therapy in the field of mental health during working life and health of older people miðar að því að auka almenna þekkingu á tengslum heilsuhagfræði og iðjuþjálfunar. Tvö svið þjónustu iðjuþjálfa eru í brennidepli í skýrslunni - atvinnuþátttaka fólks í tengslum við geðheilsu og heilsa aldraðra. 

Fyrsti hluti skýrslunnar er inngangur um heilsuhagfræði. Þar á eftir eru tveir kaflar um kerfisbundna samantekt á birtum greinum um iðjuþjálfun og heilsuhagfræði (e. systematic review). Niðurstöðurnar sýna að íhlutun iðjuþjálfa hefur ótvíræðan samfélagslegan ávinning. Iðjuþjálfun borgar sig!

Hér má nálgast skýrsluna á pdf formi.