Teymisstjóri í endurhæfingarteymi - Austurmiðstöð

22.04.2024

Heimaþjónusta leitar að öflugum teymisstjóra í þverfaglegt teymi sem veitir endurhæfingu í heimahúsi.

Heimaþjónustan Austurmiðstöð, staðsett í Hraunbæ 119, auglýsir eftir teymisstjóra í þverfaglegt teymi sem veitir endurhæfingu í heimahúsi. Unnið er í dagvinnu.

Reykjavíkurborg veitir samþætta heimaþjónustu sem samanstendur af félagslegri heimaþjónustu og heimahjúkrun og nú einnig endurhæfingu í heimahúsi. Hugmyndafræði endurhæfingar í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inn á heimili íbúans þar sem áhersla er lögð á hjálp til sjálfshjálpar. Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru að kljást við færniskerðingu og þurfa heimaþjónustu.

Endurhæfingarteymið samanstendur af iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðingi, sjúkraþjálfara/íþróttafræðingi, sjúkraliðum og félagsliðum. Teymið veitir persónumiðaða þjónustu þar sem endurhæfingaráætlun byggist á þörfum íbúans og hefur það markmið að styðja og styrkja færni, auka bjargráð og virkja samfélagsþátttöku. Hugmyndafræðin kemur frá Norðurlöndunum og er stuðst við Fredericia hugmyndafræðina frá Danmörku.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stjórnun, skipulagning og umsjón með endurhæfingarteymi. Ábyrgð á að þjónustan sé samkvæmt hugmyndafræði endurhæfingar í heimahúsi.
  • Yfirsýn yfir þarfir notenda í hverfinu.
  • Þjálfun, ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgni.
  • Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu.

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi í iðjuþjálfun.
  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi æskileg.
  • Reynsla og þekking af störfum við endurhæfingu.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs og teymisvinnu.
  • Góð samskiptafærni, tölvufærni og skipulagsfærni.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
  • Íslenskukunnátta B-2 eða hærra ( í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Laun er samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Þórisdóttir í síma 411-9600 eða í netfangi ragnheidur.thorisdottir@reykjavik.is 

Sækja um 

Til baka Senda grein