Iðja, heilsa og velferð - Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi
Þessi bók er fyrsta fræðilega ritið um iðjuþjálfun á íslensku og sem lýsir því hvenig alþjóðlegir straumar í faginu, þekking og fræði endurspeglast í íslenskum veruleika.Hér má lesa hvernig iðjuþjálfar hugsa, hvað þeir gera og hvað mótar störf þeirra og faglegar áherslur.
Bókin gefur innsýn í:
- Sögu iðjuþjálfunar og hvert fagið stefnir
- Hugmyndir og fræðasýn iðjuþjálfunar
- Aðferðir og verklag iðjuþjálfa í starfi
- Helstu áherslur og viðfangsefni iðjuþjálfa með ákveðnum hópum notenda og á mismunandi starfsvettvangi.
Fjórtán iðjuþjálfar rita í bókina, hver og einn sérfræðingur á sínu sviði.
Bókin er ætluð nemum í iðjuþjálfun, starfandi iðjuþjálfum og öðru fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu. Lögð er áhersla á að veita heildstæða sýn á samspil einstaklings, umhverfis og iðju, og auk þess aðgengilegar og áhugaverðar upplýsingar sem gagnast almennum lesendum.
Ritstjórar eru Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson
Bókin er uppseld í prentaðri útgáfu en aðgengileg í rafrænu formi á rafhlöðunni