50. Aðalfundur IÞÍ
Fimmtugasti aðalfundur Iðjuþjálfafélags Íslands fór fram þann 19. mars síðastliðinn. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þar með taldar lagabreytingar og kosningar í fastar stjórnir og nefndir.
Á undan aðalfundinum var boðið upp á fræðsluerindi þar sem Vera Kaelin iðjuþjálfi og doktor í endurhæfingarfræðum fjallaði um gervigreind og þátttökumiðaða iðjuþjálfun. Vera hefur ásamt þverfaglegu teymi rannsakað hversu vel gervigreindin fangar ýmis fyrirbæri og gagnreynda þekkingu innan iðjuþjálfunar. Hún setur fram þrjár lykilspurningar:
- Skilur gervigreindin hvað við sem iðjuþjálfar gerum?
- Mæta verkfæri gervigreindarinnar þörfum skjólstæðinga iðjuþjálfa?
- Eru verkfæri gervigreindarinnar í samræmi við siðareglur iðjuþjálfa?
Að loknu kaffihléi hófst alvaran. Fundarstjórar voru þær Sigurbjörg Hannesdóttir og Hrönn Birgisdóttir. Dagskrá var samkvæmt lögum IÞÍ og fór vel fram. Nokkrar umræður spunnust um félagsgjöld þeirra félaga sem eru með fulla aðild en stjórn hafði lagt til óbreytt félagsgjöld. Fram kom tillaga um að lækka félagsgjöldin en hún var felld. Miðlunartillaga var samþykkt sem sneri að því að stjórn IÞÍ kannaði vel möguleika á að lækka iðgjaldið og myndi setja fram þrjár sviðsmyndir. Þær yrðu kynntar félagsfólki fyrir næsta aðalfund.
Fundurinn var afar vel sóttur en 90 manns höfðu skráð sig til leiks. Öll fundargögn má finna á innri vef félagsins.
Með kærri kveðju, stjórn IÞÍ