Aðalfundur IÞÍ verður 19. mars
Aðalfundur IÞÍ verður þann 19. mars í Borgartúni 27, 3. hæð Viskusal og í fjarfundi.Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf en við byrjum á afar spennandi fræðsluerindi kl. 16:00 stundvíslega. Vera Kälin, iðjuþjálfi PhD, MScOT mun fjalla um notkun gervigreindar og þátttökumiðaða iðjuþjálfun: „Using Artificial Intelligence in Participation-Focused Occupational Therapy“.
Að loknu fræðsluerindi og kaffihléi kl. 17:15 verða hefðbundin aðalfundarstörf á dagskrá:
a. Fundur
settur
b. Skipan
fundarstjóra og fundarritara
c. Staðfest
lögmæti fundarins
d. Skýrsla
stjórnar
e. Umræður
um skýrslur fastra nefnda
f.
Endurskoðaðir reikningar félagsins kynntir og bornir undir fundinn til
samþykktar
g.
Fjárhagsáætlun stjórnar kynnt og tillaga um félagsgjöld borin upp.
h.
Lagabreytingar
i.
Kosningar:
fulltrúar í stjórn
fulltrúar í fastar nefndir
fulltrúar í félagasamtök sem IÞÍ á aðild að
tveir skoðunarmenn reikninga
j. Skipan
tilkynnt:
stjórn fagþróunarsjóðs (áður fræðslusjóður)
stjórn siðanefndar
fræðileg ritstjórn
k. Önnur
mál
l. Fundi
slitið
Samkvæmt lögum IÞÍ hefur allt skuldlaust félagsfólk, með fulla aðild eða fagaðild rétt til setu á aðalfundi. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér: https://forms.gle/R9cKovh9YHrXPmXD8 Þau sem skrá sig á fjarfund fá sendan hlekk samdægurs.
Fundargögn verða á innri vef félagsins www.ii.is. Að loknum staðfundi verður boðið upp á léttar afmælisveitingar því þetta er jú fimmtugasti aðalfundurinn okkar! Við hvetjum félagsfólk til að gefa sér tíma til samveru. Hlökkum til að sjá ykkur, bæði á stað og skjá.
Fyrir hönd stjórnar IÞÍÞóra Leós