Fréttir

Auglýst eftir framboðum

Kjörnefnd óskar eftir framboðum í lausar stöður

4.2.2022

Iðjuþjálfafélag Íslands þarf fólk til að starfa í stjórnum og nefndum!

Kæri félagi

Á hverju ári sameina fjölmargir iðjuþjálfar krafta sína og taka að sér trúnaðarstörf í þágu félagsins og fyrir það erum við afar þakklát. Starfsemi og framþróun IÞÍ byggir á virkri þátttöku félagsfólks. Þú getur haft áhrif með því að bjóða þig fram. Vertu með og láttu í þér heyra!

Kosið verður og skipað í stjórnir og nefndir á aðalfundi IÞÍ þann 30. mars næstkomandi. Kjörtímabil er tvö ár nema annað sé tekið fram. Helstu upplýsingar um hlutverk og störf nefnda má finna í lögum félagsins (www.ii.is) og í drögum að handbók á innri vef heimasíðunnar. Einnig er velkomið að hafa samband við formann (thoraleo@bhm.is) ef nánari upplýsinga er þörf.

Eftirtalin sæti eru laus:

· Stjórn IÞÍ: Tveir aðalmenn og einn varamaður

· Fræðslunefnd: Þrír fulltrúar

· Ritnefnd: Þrír fulltrúar (þ.m.t. ritstjóri)

· Fræðileg ritstjórn Iðjuþjálfans: Tveir fulltrúar (skipaðir af stjórn IÞÍ)

· Siðanefnd: Einn aðalfulltrúi, einn varafulltrúi

· Stjórn Fagþróunarsjóðs: Einn fulltrúi til þriggja ára (skipaður af stjórn IÞÍ)

· Fulltrúi IÞÍ í Öldrunarráði Íslands: Einn aðalfulltrúi

· Skoðunarmenn reikninga: Tveir fulltrúar

Áhugasöm eru beðin um að hafa samband við undirritaða fyrir 25. febrúar næstkomandi.

Bestu kveðjur,

Kjörnefnd IÞÍ 2022

Inga Guðrún Sveinsdóttir, inga.sveinsdottir@hrafnista.is