Fréttir
Doktorsvörn Sonju Stellyjar
Við óskum Sonju Stellyju Gústafsdóttur iðjuþjálfa hjartanlega til hamingju með áfangann en hún varði doktorsritgerð sína í heilbrigðisvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands þann 7. maí síðastliðinn. Donja Stelly er sjötti íslenski iðjuþjálfinn sem lýkur doktorsprófi.Ritgerðin ber heitið: Heilsulæsi og eldri Íslendingar búsettir í heimahúsi: Þátttökubundin sýn á getu einstaklinga og möguleika í umhverfinu.
Heilsulæsi (HL) er talið nauðsynlegt fyrir heilsu og velsæld fólks á öllum aldri. Að vera heilsulæs, það er að taka heilsutengdar ákvarðanir og rata innan heilbrigðis- og velferðarkerfisins, byggir á getu einstaklings og tiltækum upplýsingum og þjónustu.
Á heimsvísu mælist eldra fólk með lægra HL en aðrir aldurshópar fullorðinna einstaklinga, þótt eitthvert ósamræmi sé að finna. Takmarkaðar upplýsingar eru til um HL á Íslandi sem og aðgengileg staðfærð matstæki.
Rannsóknin, Heilsulæsi og eldri Íslendingar búsettir í heimahúsi, varpar ljósi á víxlverkandi samspil einstaklings- og umhverfisþátta sem hafa áhrif á getu eldra fólks til að framkvæma HL-tengd verk í sínu umhverfi.
Meginmarkmið rannsóknarinnar, sem er þríþætt, var að rannsaka HL, með áherslu á fólk 65 ára og eldra, sem býr í heimahúsi á strjálbýlum svæðum á Norðurlandi út frá þátttökubundinni sýn á iðjuréttlæti.