Fjölmennum á 1. maí
Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er á morgun fimmtudag. Við hvetjum iðjuþjálfa til að taka þátt í baráttufundum og öðrum viðburðum um land allt. Í Reykjavík verður Bíó Paradís opnað kl. 11:00 og safnast félagsfólk aðildarfélaga BHM saman.
Við fögnum áfangasigrum launþegahreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum byggja fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt.
Við höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafi breyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum.
Iðjuþjálfar eru kvennastétt hér á landi og því standa þessi mál okkur nær. Við hvetjum félagsfólk IÞÍ til að fjölmenna í Bíó Paradís og vera okkur samferða upp á Skólavörðuholt þar sem gangan hefst kl. 13:00
Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025. Á útifundinum á Ingólfstorgi mun fundarstýra, ræðufólk, tónlistarfólk og táknmálstúlkur vera konur og þá munu Rauðsokkur stíga á svið og segja nokkur orð.
Nánar um dagskrá:
13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi.
Fundarstýra er Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir sviðshöfundur og listakona. Táknmálstúlkar verða Margrét Baldursdóttir og Lilja Íris Long Birnudóttir. Dagskráin verður jafnframt textatúlkuð á ensku.
Ræðu flytja Karla Esperanza Barralaga Ocón starfskona í umönnun, trúnaðarmaður og stjórnarmaður í Eflingu og Jóhanna Bárðardóttir rafveituvirki, rafvirki og trúnaðarmaður RSÍ.
Rauðsokkur segja nokkur orð.
Mammaðín og Una Torfa munu taka lagið og í lok fundarins verður samsöngur.
Frétt fengin af vefsíðu BHM