Formannskjör 2025
Núverandi formaður Iðjuþjálfafélags Íslands, Þóra Leósdóttir lýkur þriðja kjörtímabili sínu í mars næstkomandi. Því fer fram formannskjör í aðdraganda næsta aðalfundar sem ráðgerður er þann 27. mars 2025. Nú er kallað eftir framboðum til embættis formanns IÞÍ.
Úr lögum Iðjuþjálfafélags Íslands:
7. grein – Kosningar og atkvæðagreiðsla
„Kosningar til trúnaðarstarfa og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar skulu vera leynilegar komi fram um það tillaga studd af þremur félögum. Einfaldur meirihluti ræður í atkvæðagreiðslu.
Formaður félagsins er kosinn til tveggja ára í senn. Við lok kjörtímabils formanns skal kallað eftir framboðum til embættisins eigi síðar en þremur mánuðum fyrir aðalfund og lýkur framboðsfresti þremur vikum fyrir aðalfund. Frambjóðendur fá tvær vikur til að kynna sig. Kosning formanns skal vera rafræn, hefjast viku fyrir aðalfund og standa yfir í þrjá daga. Gefi sitjandi formaður kost á sér áfram og mótframboð berst ekki, telst hann sjálfkjörinn án kosningar.
Kallað er eftir framboðum í stjórn félagsins, nefndir og stjórnir eigi síðar en fjórum vikum fyrir aðalfund og lýkur framboðsfresti tveimur vikum fyrir aðalfund. Heimilt er að kjósa rafrænt í stjórn og fastar nefndir IÞÍ séu fleiri en einn í framboði miðað við sæti. Hafi ekkert framboð komið fram í eitthvert embætta félagsins, er hægt að bjóða sig fram á aðalfundi.“
Hafi félagi áhuga á að bjóða sig fram til formennsku þá þarf viðkomandi að vera með fulla aðild (stéttarfélagsaðild) að IÞÍ. Framboð óskast tilkynnt á skrifstofu félagsins á sigl@bhm.is fyrir fimmtudaginn 6. mars 2025. Samkvæmt lögum félagsins skal formaður kosinn rafrænt viku fyrir aðalfund. Komi ekki mótframboð telst formaður sjálfkjörinn án kosningar.
Kjörnefnd mun afla framboða í önnur laus sæti eins og venja er en við hvetjum öll þau sem hafa áhuga á að sinna trúnaðarstörfum fyrir IÞÍ að láta heyra frá sér með því að senda tölvupóst á sigl@bhm.is.
Stjórn IÞÍ