Fréttir

Fræðsluerindi: Vera Kaelin

Using Artificial Intelligence in Participation - Focused Occupational Therapy

12.3.2026

Í tengslum við aðalfund IÞÍ þann 19. mars verður boðið upp á fræðsluerindi um notkun gervigreindar í þátttökumiðaðri iðjuþjálfun. Lykilspurningar verða ræddar: 

  • Skilur gervigreindin hvað iðjuþjálfar gera?
  • Mæta verkfæri gervigreindarinnar þörfum skjólstæðinga iðjuþjálfa?
  • Eru verkfæri gervigreindarinnar í takt við siðareglur iðjuþjálfa?

Vera lauk BSc námi í iðjuþjálfun 2009, kennaranámi 2013, MSc námi í iðjuþjálfun 2016 og doktorsnámi í endurhæfingarfræðum 2022 frá Illinois háskóla í Chicago. Hún hefur ásamt fleira fræðafólki birt fjölmargar greinar í ritrýndum fagtímaritum á undanförnum árum. Vera hefur síðustu misserin einkum beint sjónum að samspili og áhrifum gervigreindar á þekkingu og íhlutun innan iðjuþjálfunar. Í erindinu mun hún fjalla um notkun gervigreindar í tengslum við þátttökumiðaða iðjuþjálfun. 

Erindi verður á TEAMS og hefst kl. 16:00. Skráning á erindið sem og aðalfundinn fer fram hér: https://docs.google.com/forms/d/1H_AwLC3n3ePehle9ICdSEY5LpUViwiTeKto2po9ciQw/edit#responses

Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk samdægurs

Hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn IÞÍ