Fréttir

Áliti umboðsmanns Alþingis fagnað

14.04.2021

14.4.2021

Iðjuþjálfar fagna sérstaklega nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis varðandi hvað teljast nauðsynleg hjálpartæki fyrir fatlað fólk.

Í aðsendri grein sem birtist í Fréttablaðinu koma iðjuþjálfar á framfæri ályktun sem samþykkt var á aðalfundi IÞÍ 12. mars sl. 

„Aðalfundur IÞÍ 2021 fagnar sérstaklega nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis um að túlkun úrskurðarnefndar velferðarmála á því að hjálpartæki sé ekki nauðsynlegt ef sjúkratryggð manneskja kemst af án þess, þrengi með fortakslausum hætti að þeim tilgangi og undirliggjandi réttindum sem lög nr. 112/2008 ná yfir.

Iðjuþjálfar hér á landi hafa árum saman barist fyrir því að fatlað fólk á öllum aldri fái sanngjarna styrki til að kaupa hjálpartæki sem efla iðju þess og þátttöku í samfélaginu, auka lífsgæði og bæta heilsu.

Álitið er afar þýðingarmikið í ljósi mannréttinda og þeirrar kröfu að allt fólk njóti jafnra tækifæra til iðju sem er því mikilvæg í daglegu lífi.“

Iðjuþjálfar eru ein af lykilstéttum endurhæfingar og líta svo á að endurhæfing sé valdeflandi samstarfsferli þar sem full þátttaka og hlutdeild í samfélaginu eru mannréttindi segir Þóra Leósdóttir formaður IÞÍ.