Iðjuþjálfar útskrifast
Metfjöldi kandídata brautskráður frá Háskólanum á Akureyri
Þann 19. júní síðastliðinn bættist aldeilis í hóp iðjuþjálfa þegar 27 kandídatar brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri með viðbótardiplóma á meistarastigi til starfsréttinda í iðjuþjálfun. Fram kom í ræðu rektors að metfjöldi kandídata væri að útskrifast núna frá Háskólanum á Akureyri - frá upphafi eða alls 639 kandídatar.
Samkvæmt venju bauð IÞÍ til móttöku í tengslum við háskólahátíð HA þar sem útskriftarnemum úr starfsréttindanámi í iðjuþjálfun sem og iðjuþjálfum í öðru framhaldsnámi var boðið.
Eins og áður sagði brautskráðust 27 nemendur með viðbótardiplóma í iðjuþjálfun til starfsréttinda. Formaður óskaði verðandi iðjuþjálfum innilega til hamingju og bauð þau hjartanlega velkomin í Iðjuþjálfafélag Íslands. Kandídatarnir fengu vatnsflösku með merki félagsins, rós og veggspjald með siðareglum iðjuþjálfa að gjöf.
Þrír iðjuþjálfar brautskráðust úr MSc námi í heilbrigðisvísindum og sjö iðjuþjálfar luku 60 ECTS eininga diplómu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Um er að ræða fyrsta útskriftarhópinn úr þessari námsleið en hún veitir sérhæfðan þekkingargrunn og færni á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða þjónustu og ráðgjöf fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra.
Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri leiðir námið en það er kennt í samstarfi við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og veitir viðbótardiplómu á meistarastigi í heilbrigðisvísindum.
Sjá má fleiri myndir frá viðburðinum hér