Fréttir

Kjarasamningur við RVK samþykktur

Nýtt samkomulag IÞÍ og Reykjavíkurborgar

26.5.2023

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjavíkurborgar með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024 eru á þann veg að samkomulagið var samþykkt af félagsfólki IÞÍ.

Kosning hófst 19. maí og lauk 26. maí . Á kjörskrá voru 15 félagar, alls 8 greiddu atkvæði eða 53,33%. Já, ég samþykki sögðu 75%, nei ég samþykki ekki sögðu 25%. Samningurinn skoðast því samþykktur.