Fréttir

Kjarasamningur við SFV samþykktur

Nýtt samkomulag IÞÍ og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu

16.6.2023

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024 eru á þann veg að samkomulagið var samþykkt af félagsfólki IÞÍ.

Kosning hófst 12. júní og lauk á hádegi 16. júní . Á kjörskrá voru 66 félagar, alls 40 greiddu atkvæði eða 60,61%. Alls 26 tóku ekki þátt í atkvæðagreiðslunni. Já, ég samþykki sögðu 100%, nei ég samþykki ekki sögðu 0%. Samningurinn skoðast því samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. 

Kjarasamninginn má finna hér