Fréttir

Kjörnefnd IÞÍ 2021 framlengir framboðsfrest!

Viltu hafa áhrif? - nú er tækifæri!

8.2.2021

Á hverju ári sameina fjölmargir iðjuþjálfar krafta sína og taka að sér trúnaðarstörf í þágu félagsins og fyrir það erum við afar þakklát. Starfsemi og framþróun IÞÍ byggir á þátttöku félagsfólks. Þú getur haft áhrif með því að bjóða þig fram. 

Vertu með og láttu í þér heyra – þín rödd skiptir máli!

Kosið verður og skipað í stjórnir og nefndir á aðalfundi IÞÍ þann 12. mars næstkomandi. Kjörtímabil er tvö ár nema annað sé tekið fram. Helstu upplýsingar um hlutverk og störf nefnda má finna í handbók félagsins á innri vef heimasíðunnar (www.ii.is) eða hjá formanni (thoraleo@bhm.is).

Eftirtalin sæti eru laus:

· Stjórn IÞÍ: Tveir aðalmenn og einn varamaður

· Kjaranefnd: Fjórir aðalfulltrúar, tveir varafulltrúar

· Fræðslu- og kynningarnefnd: Fjórir aðalfulltrúar

· Ritnefnd: Þrír fulltrúar

· Fræðileg ritstjórn Iðjuþjálfans: Einn fulltrúi

· Fulltrúi IÞÍ í Öldrunarráði Íslands: Einn varafulltrúi

· Siðanefnd: Tveir aðalfulltrúar, tveir varafulltrúar

· Stjórn Fræðslusjóðs: Einn fulltrúi til þriggja ára

Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við undirritaða á netfangið annaerl@landspitali.is fyrir 25. febrúar næstkomandi.

Bestu kveðjur,

Anna Ingileif Erlendsdóttir, kjörnefnd IÞÍ 2021