Kjörnefnd IÞÍ: Viltu vera með?
Á hverju ári sameina fjölmargir iðjuþjálfar krafta sína og taka að sér trúnaðarstörf í þágu félagsins og fyrir það erum við afar þakklát. Starfsemi og framþróun Iðjuþjálfafélags Íslands byggir á virkri þátttöku félagsfólks. Þú getur haft áhrif með því að bjóða þig fram. Vertu með og láttu í þér heyra!
Kosið verður og skipað í stjórnir og nefndir á aðalfundi IÞÍ sem ráðgerður er þann 19. mars 2026 í Borgartúni 27, 3. hæð og í fjarfundi.
Kjörtímabil fulltrúa er tvö ár nema annað sé tekið fram. Helstu upplýsingar um hlutverk og störf nefnda má finna í lögum félagsins (www.ii.is) og umfjöllun um starfsemi á innri vef heimasíðunnar. Einnig er velkomið að hafa samband við formann á thoraleo@ii.is ef nánari upplýsinga er þörf.
Eftirtalin sæti í nefndir og stjórnir eru laus:
· Stjórn IÞÍ: Tveir aðalmenn og einn varamaður
· Fræðslunefnd: Þrír fulltrúar
· Ritnefnd: Tveir fulltrúar
· Fræðileg ritstjórn Iðjuþjálfans: Tveir fulltrúar (skipaðir af stjórn IÞÍ)
· Siðanefnd: Tveir aðalfulltrúar, tveir varafulltrúar (skipaðir af stjórn IÞÍ)
· Stjórn Fagþróunarsjóðs: Einn fulltrúi til þriggja ára (skipaður af stjórn IÞÍ)
· Skoðunarmenn reikninga: Tveir fulltrúar
· Fulltrúi IÞÍ í Öldrunarráði Íslands: Einn aðalfulltrúi
Frestur fyrir framboð í trúnaðarstörf rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Þau sem hafa í hyggju að bjóða fram krafta sína eru því beðin um að láta undirritaða vita fyrir 5. mars næstkomandi.
Bestu kveðjur,
f. h. kjörnefndar IÞÍ 2026, Ingibjörg Ólafsdóttir, ingibjorg@starfvest.is