Fréttir

Málþing IÞÍ verður haldið þann 27. október

Kallað eftir erindum!

19.9.2022

Málþing IÞÍ verður haldið á alþjóðlegum degi iðjuþjálfunar 27. október 2022, kl. 15:00 - 17:00.

Fræðslunefnd IÞÍ kallar eftir erindum fyrir árlegt málþing í tilefni af alþjóðlegum degi iðjuþjálfunar.

Yfirskriftin í ár er ,,Tækifæri + Val = Réttlæti“


Við óskum eftir iðjuþjálfum sem vilja kynna rannsóknir, verkefni, störf eða nýjungar sem ríma við yfirskriftina.

Vinsamlegast sendið ágrip eða lýsingu á efni og titil á fyrirlestri á netfangið idjuthjalfafelag@bhm.is merkt ágrip 2022 fyrir 10. október næstkomandi.

Málþingið verður blanda af staðfundi og fjarfundi, nánar auglýst síðar.

Fræðslunefnd Iðjuþjálfafélags Íslands