Fréttir

Mesti hagnaður á öldinni

Greining BHM

17.1.2023

Samkvæmt mati BHM jókst samanlagður rekstrarhagnaður fyrirtækja um 60% á árunum 2018-2022 á sama tíma og verðlag hækkaði um 20%. Rekstrarhagnaður fyrirtækja árin 2021 og 2022 er sá mesti á öldinni, hvort sem litið er til hagnaðar á föstu verðlagi eða í hlutfalli við landsframleiðslu. Vísbendingar eru um að aukinn hagnað megi að hluta skýra með hækkandi álagningu á verðbólgutímum. Hætt er við að launahækkanir verði notaðar sem tylliástæða fyrir verðhækkanir á næstunni. Fjallað er um þetta í hagkorni janúarmánaðar.

Hér má sjá hagkornið í heild sinni á heimasíðu BHM