Fréttir

Námskeið: Að tilheyra sjálfum sér

30.10.2026

Námskeið haldið 23-24 nóvember í samstarfi við Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð og Iðjuþjálfafélag Íslands. Það er ætlað fagfólki í heilbrigðis- og menntakerfinu sem vill dýpka skilning á hvernig áföll hafa áhrif á streitu, tengsl og þroska taugakerfisins og hvernig birtist það í færni, hegðun og þátttöku í daglegu lífi. Þetta tveggja daga námskeið veitir djúpstæða og hagnýta innsýn í áfalla- og tengslamiðaða nálgun með sérstakri áherslu á iðjuþjálfun. Námskeiðið styður fagfólk í að vinna af meira öryggi, næmni og skýrleika með skjólstæðingum á öllum æviskeiðum. Áhersla er lögð á taugakerfið, skynúrvinnslu, tengslamyndun og daglega iðju, ásamt verkfærum sem nýtast á starfsvettvangi.

Námskeiðið er haldið dagana 23-24 nóvember frá 09:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 báða dagana

Efnistök námskeiðs eru:
-Mikilvægi fyrstu áranna og þroska miðtaugakerfisins
-Áhrif streitu og áfalla á tengsl og færni í daglegu lífi
-Taugakerfið með sérstaka áherslu á skynúrvinnslu.
-Yfirfærsla og hagnýt verkfæri á mismunandi æviskeiðum

Grænahlíð fjölskyldumiðstöð / Fjarkennsla Skráning á námskeið: https://forms.gle/d2kFLtn7atZ9iUAG6

ATH. Aðeins 20 pláss í boði í Grænuhlíð Fjölskyldumiðstöð en opið fyrir fleiri í gegnum fjarfund. Kaffihlé í báðum vinnulotum er innifalið í verði. ATH hádegismatur er ekki innifalinn.

Þátttökugjald er kr. 86.900 og skráningarfrestur er 23. nóvember. Leiðbeinendur námskeiðs eru Alda Pálsdóttir og Harpa Ýr Karínardóttir, iðjuþjálfar í Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð