Fréttir

Samstaða á 1. maí

28.4.2023

Félagsfólk IÞÍ er hvatt til þess að taka þátt í kröfugöngu á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Við hittumst í Borgartúni 6 kl. 11:30, fáum okkur hamborgara frá Gastro Truck í boði BHM, tökum fána félagsins í hönd og röltum saman að Skólavörðuholti en þaðan verður kröfuganga niður á Ingólfstorg undir dúndrandi lúðrablæstri.

Frá skipuleggjendum:1. maí, einnig kallaður verkalýðsdagurinn, er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Í ár eru 100 ár síðan fyrsta 1. maí kröfugangan var gengin. Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkalýðs í gegnum tíðina og leggjum áherslur á nýjar og breyttar kröfur í þágu verkafólks. Sýndu stuðning þinn við baráttu verkalýðshreyfingarinnar, komdu og marseraðu með okkur niður Skólavörðustíginn þann 1. maí næstkomandi!
DAGSKRÁ:13:00
Safnast saman á Skólavörðuholti
13:30
Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að IngólfstorgiLúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á lngólfstorg.
14:00
Útifundur hefstFundarstjóri Magnús Norðdahl.Ræðu flytja Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður RSí.Hljómsveitin Dimma og Stefanía Svavars spila.
Í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk lnternationallin og Maístjörnuna.- Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, KÍ og BHM


Hlökkum til að sjá ykkur! Áfram iðjuþjálfun!
Kveðja frá stjórn IÞÍ