Fréttir

Úthlutað úr Fagþróunarsjóði IÞÍ

6.11.2023

Styrkjum er úthlutað úr Fagþróunarsjóði IÞÍ tvisvar á ári. Þetta haustið bárust tvær umsóknir frá einum umsækjanda. Bæði verkefnin hlutu styrk. Um er að ræða handbækur vegna tveggja matstækja: Mat á vilja (Volitional Questionnare - VQ) og Iðjumynd fullorðinna (Model of Human Occupation Screening Tool - MOHOST). Kristjana Fenger iðjuþjálfi hlaut styrkina. Sótt var um styrki til útgáfu handbókanna (þýðing, yfirlestur, prentun, fjölföldun).

Við óskum Kristjönu innilega til hamingju með styrkina.