Úthlutun úr Fagþróunarsjóði
Styrkir veittir til þriggja verkefna
Í byrjun maí mánaðar fór fram úthlutun úr Fagþróunarsjóði Iðjuþjálfafélags Íslands. Fjórar umsóknir bárust að þessu sinni en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári - vor og haust.
Hlutverk sjóðsins er að efla framgang iðjuþjálfunar hér á landi og styrkja innra starf félagsins. Markmiðið er þannig að styrkja iðjuþjálfa vegna rannsókna og þróunarverkefna, fræðslu- og kynningarefnis auk þátttöku á námskeiðum í þágu nefnda félagsins. Sjóðnum er ekki ætlað að styrkja iðjuþjálfa, sem einstaklinga til endurmenntunar í eigin þágu.
Þær umsóknir sem hlutu styrki voru eftirfarandi:
1. Heiti verkefnis: Að tilheyra sjálfum sér – Áfalla-og tengslamiðuð iðjuþjálfun
Harpa Ýr Karínardóttir sækir um styrk kr. 300.000 til að þróa og hanna námskeið fyrir iðjuþjálfa um áfallamiðaða og tengslamiðaða nálgun í starfi. Markmið námskeiðsins er að styrkja fagaðila í að vinna af öryggi, næmni og fagmennsku með skjólstæðingum sem hafa upplifað áföll og/eða tengslavanda. Áhersla er lögð á að byggja upp skilning á áhrifum áfalla á þroska og starfsemi taugakerfisins og hvernig þau áhrif birtast í færni við daglega iðju.
Stjórn mat umsóknina styrkhæfa og samþykktur er styrkur kr. 100.000.
2. Heiti verkefnis: Iðjuþjálfun í blóma – námskeið í samstarfi við EHÍ.
Berglind Indriðadóttir sækir um styrk kr. 100.000, vegna undirbúnings námskeiðs til að efla og styðja iðjuþjálfa í starfi þeirra með öldruðum. Námskeiðið mun fjalla um persónumiðaða nálgun iðjuþjálfa í öldrunarþjónustu – tækifæri og áskoranir. Megin áhersla námskeiðsins verður út frá umfjöllun um nýja sýn Tom Kitwood á heilabilun og hugmyndafræði persónumiðaðrar öldrunarþjónustu. Einnig verður fjallað um nýja menningu og tengingu við hugmyndafræði iðjuþjálfunar. Stuðst við Kanadíska líkanið.
Stjórn mat umsóknina styrkhæfa og samþykktur er styrkur kr. 100.000.
3. Heiti verkefnis: Prófarkalestur á rannsóknargrein.
Helga Sif Pétursdóttir sækir um styrk kr. 29.660, vegna prófarkalesturs á rannsóknargrein. Greinin er skrifuð á ensku og birt í Scandinavian Journal of Occupational Therapy. Rannsóknargreinin fjallar um þýðingu, staðfærslu og réttmætisathugun matstækis sem metur kulnun í foreldrahlutverkinu. Greinin er sú fyrsta sem skrifuð er um fyrirbærið af iðjuþjálfum en í bakgrunn greinarinnar er kulnun í foreldrahlutverkinu skoðuð út frá iðjuþjálfunarfræðum.
Stjórn mat umsóknina styrkhæfa og samþykktur er styrkur kr. 29.660.
Við óskum styrkþegum til hamingju með styrkina og megi þeim ganga allt að sólu með sín verkefni.
Um fagþróunarsjóð IÞÍ: https://www.ii.is/felagid/starfsemi/fagthrounarsjodur/
Fyrir hönd stjórnar fagþróunarsjóðs
Gunnhildur Gísladóttir, formaður