Fréttir

Vel heppnað A-ONE námskeið

1.4.2026

Vikuna 16. til 20. mars var haldið A-ONE námskeið í samstarfi IÞÍ og Endurmenntunar HÍ. Um var að ræða þjálfun í notkun þessa iðjumiðaða matstækis sem er ítarlega rannsakað, hannað og þróað af Guðrúnu Árnadóttur iðjuþjálfa. 

A-ONE er staðlað og markbundið iðjumatstæki þar sem framkvæmdafærni við daglegar athafnir er metin sem og áhrif taugaeinkenna á framkvæmdina. Markmið námskeiðsins er að kenna iðjuþjálfum áreiðanlega notkun A-ONE. Fjallað var um fræðilegan bakgrunn, klíníska rökleiðslu, fyrirlögn, úrvinnslu upplýsinga og stigagjöf. Guðrún Árnadóttir er höfundur bókarinnar „The Brain and Behavior: Assessing cortical dysfunction through ADL“ sem gefin var út 1990 og liggur til grundvallar matstækinu.
Alls 13 iðjuþjálfar tóku þátt í námskeiðinu og leiðbeinendur voru þær Guðrún Árnadóttir og Valerie Harris. Við þökkum fræðslunefnd IÞÍ innilega fyrir að skipuleggja námskeiðið með Endurmenntun HÍ.
Stjórn IÞÍ