Iðjuþjálfaþing 2026
Iðjuþjálfafélag Íslands er 50 ára
Í tilefni af 50 ára afmælis Iðjuþjálfafélags Íslands verður blásið til Iðjuþjálfaþings þann 23. október næstkomandi á Reykjavík Hilton Nordica. Markmið þingsins er að fagna sögu félagsins og varpa ljósi á fortíð, nútíð og framtíð þess. Iðjuþjálfar koma saman, fagna faginu, miðla þekkingu, efla samheldni og samstöðu meðal kollega. 
Nú er kallað eftir ágripum fyrir þingið og við hvetjum iðjuþjálfa til að senda inn ágrip fyrir 28. ágúst næstkomandi. Hér eru leiðbeiningar fyrir ágrip og einnig er hægt að hlaða niður word skjali og nýta við gerð ágripsins. Gerum gott Iðjuþjálfaþing og kýlum á góða dagskrá!
Hlekkur á word skjal: agrip_idjuthjalfathing_2026-1-
Leiðbeiningar fyrir ágrip
Hámarks orðafjöldi: 250 orð. Letur: calibri 11p
Ágrip (rannsókn) – skal innihalda eftirfarandi:
Nafn/nöfn höfunda, starfsvettvangur eða vinnustaður, netfang tengiliðar
Titill ágrips
Þrjú lykilorð
Markmið
Aðferðir
Niðurstöður
Ályktanir
Hagnýtt gildi fyrir iðjuþjálfun
Ágrip (verkefni) – skal innihalda eftirfarandi:
Nafn/nöfn höfunda, starfsvettvangur eða vinnustaður, netfang tengiliðar
Titill ágrips
Þrjú lykilorð
Hvert var viðfangsefnið/vandamálið?
Hver var möguleg lausn?
Hver var útkoman?
Hagnýtt gildi fyrir iðjuþjálfun
Framsetning
☐ Munnlegt erindi – lengd 20 mínútur
☐ Veggspjald
☐ Annað: __________________
Skilafrestur og upplýsingar
Ágripum skal skilað fyrir 28. ágúst 2026 á netfangið: idjuthjalfafelag@ii.is merkt „ágrip 2026.“ Öll innsend ágrip verða metin af ráðstefnunefnd. Höfundar fá svar eigi síðar en 10. september 2026. Nánari upplýsingar veitir Þóra Leósdóttir, thoraleo@ii.is, s: 895 6310.
Áfram iðjuþjálfun!
Ráðstefnunefnd Iðjuþjálfaþings 2026