Fréttir

Iðjuþjálfaþing - nú er hægt að skrá sig!

Iðjuþjálfaþing 2026

21.9.2026

Eins og öll vita þá verður Iðjuþjálfaþing þann 23. október á Hilton Reykjavík frá 09:00 - 17:00.  Nú er hægt að skrá sig bæði á þingið og hátíðarkvöldverð í Gamla Bíói þar sem við ætlum að hafa gaman saman enda Iðjuþjálfafélag Íslands 50 ára!

Dagskráin liggur fyrir og er hrikalega spennandi. Hægt er að nálgast hana hér og yfirlit yfir málstofur hér

Skráning á iðjuþjálfaþing og hátíðarkvöldverð fer fram á þessum hlekk

Athugið að þátttökugjaldið á iðjuþjálfaþingið hækkar frá og með 12. október í kr. 38.000

Miðaverð á hátíðarkvöldverðinn er kr. 20.000. Húsið opnar kl. 19:00 stundvíslega. Gamla Bíó er í Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kveðja ráðstefnunefndin