Sumarkveðja frá formanni
Það er komið sumar, iðjuþjálfar sem og aðrir landsmenn eru út um hvippinn og hvappinn að elta veðrið. Við hér á skrifstofunni, ætlum að leggja land undir fót í næstu viku og lokum skrifstofunni á meðan. Ef erindi eru brýn og geta ekki beðið er hægt að hringja í gsm síma formanns og við reynum að leysa mál.
Iðjuþjálfaþing
2026
Undirbúningur fyrir
fyrsta iðjuþjálfaþingið er í algleymingi. Tilgangurinn er að hittast og fagna 50
ára afmæli félagsins, minnast sögunnar, miðla þekkingu og efla faglega og
félagslega samstöðu meðal félagsfólks. Markmiðið er síðan að halda árlegt
iðjuþjálfaþing hér eftir. Skipuð hefur verið ráðstefnunefnd fyrir komandi þing en
í henni sitja, auk stjórnar IÞÍ fulltrúar úr ritnefnd, fræðslunefnd og
iðjuþjálfunarfræðideild HA. Kallað hefur verið eftir ágripum og við hvetjum
iðjuþjálfa til þess að senda inn slíkt en skilafrestur er 28. ágúst
næstkomandi. Við hvetjum sem flest til að senda inn ágrip enda af nægu að taka
hvort sem um er að ræða rannsóknir eða spennandi verkefni af starfsvettvangi.
Leiðbeiningar fyrir framsetningu ágripa má finna hér.
Iðjuþjálfinn
fagblað
Ritnefnd hefur veg og vanda af vinnslu og útgáfu Iðjuþjálfans
– okkar besta fagblaðs, og hefur auglýst eftir efni. Greinar geta verið fræðilegar,
hagnýtar, persónulegar eða skapandi, aðalatriðið er að þær endurspegli
fjölbreytileika іðjuþjálfunar og daglegt starf okkar. Skilafrestur er 1. ágúst
næstkomandi og félagar beðnir um að hafa samband á ritnefnd@ii.is. Sjá nánar skilaboð frá ritnefnd IÞÍ
hér. Það má líka upplýsa um að nú eru öll tölublöð
Iðjuþjálfans, það er frá 1979 komin inn á heimasíðu félagsins.
Leynist formaður í þér?
Líkt og tilkynnt var á 50. aðalfundi IÞÍ í mars
síðastliðnum lýkur kjörtímabili mínu sem formanns í mars 2027. Ég sagði frá því að ég
myndi ekki gefa kost á mér aftur sem formaður. Ástæðan er einfaldlega sú að ég
ætla að hætta að vinna og fara á eftirlaun. Ég vil algjörlega taka fram að
formannsstarfið er skemmtilegasta vinna sem ég hef verið í. Starfið hefur gert
mér kleift að sameina áhuga og ástríðu á faginu okkar, faglega reynslu og
þekkingu. Þetta hef ég reynt að nýta í þágu félagsfólks auk þess að læra meira
og meira á degi hverjum. Ég er þess fullviss að í röðum iðjuþjálfa leynist
flottur fulltrúi til að taka við keflinu! Áhugasömum er velkomið að hafa
samband við mig.
Sólarkveðja
Þóra Leósdóttir, formaður IÞÍ