Félög sem eiga aðild að SIGL

Í gildi er samstarfssamningur um rekstur sameiginlegrar þjónustuskrifstofu fyrir Félag sjúkraþjálfara, Iðjuþjálfafélag Íslands, Félag geislafræðinga og Félag lífeindafræðinga. Þjónustuskrifstofan ber heitið „SIGL“ (upphafsstafir félaganna fjögurra).

Samstarfssamningurinn var undirritaður 30. september 2003 og tók skrifstofan formlega til starfa 1. október sama ár.

Stofnun þjónustuskrifstofunnar átti sér talsverðan aðdraganda og var að tillögu Halldóru Friðjónsdóttur þáverandi formanns BHM og Gísla Tryggvasonar þáverandi framkvæmdastjóra bandalagsins var stofnað til viðræðna milli þessara fjögurra félaga um áramótin 2002/2003. Fljótlega kom í ljós að þau áttu ýmislegt sameiginlegt og fulltrúar þeirra fundu styrk í þessu samstarfi jafnframt því sem leitað var fyrirmyndar hjá núverandi þjónustuskrifstofu fimm BHM félaga, Huggarði, sem reyndist hafa marga góða kosti.

Framkvæmdastjóri SIGL er Fjóla Jónsdóttir og hefur hún sinnt því starfi síðan 2020. Netfang er: sigl@bhm.is, sími: 595 5186, staður: Borgartún 27, 2. hæð.

Markmiðin:

  • Að hagræða í rekstri á skrifstofu og bæta þjónustu við félagsfólk fag- og stéttarfélaganna.
  • Að byggja upp, þróa og viðhalda þekkingu á kjara- og réttindamálum.
  • Að bæta aðgengi félagsfólks og kjörinna fulltrúa að þjónustu og upplýsingum.
  • Að samhæfa krafta fag- og stéttarfélaga í skyldum greinum.
  • Að bæta gagna- og skjalavörslu.
  • Að létta störf kjörinna fulltrúa í stjórnum og nefndum.

Vegna breyttra aðstæðna hefur þessum samningi verið breytt tvisvar síðan. Sjá hér að neðan:

samstarfssamningur-SIGL-30-sep-2003
samstarfssamningur-SIGL-feb-2012
samstarfssamningur-SIGL-jan-2013

Til baka Senda grein