Akureyrarbær - fullt starf

Velferðarsvið: Sérfræðingur í þjónustu við fatlað barn

VELFERÐARSVIÐ: SÉRFRÆÐINGUR Í ÞJÓNUSTU VIÐ FATLAÐ BARN
Umsóknarfrestur: 29.01.2024

Velferðarsvið Akureyrarbæjar óskar eftir sérfræðingi í þjónustu við fatlað barn. Um er að ræða allt að 100% ótímabundið starf í dagvinnu á leikskólanum Klöppum og á heimili barns. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Markmiðið er að barnið geti verið þátttakandi í skólastarfi. Verkefni starfsmanns er að veita barni þjónustu á leikskóla og heimili eftir atvikum. Unnið er í þverfaglegu teymi.

Helstu verkefni eru:

· Styðja við aðlögun barns að leikskólastarfi svo það fái notið sín sem best.

· Tekur þátt í faglegu starfi skólans í samvinnu við deildarstjóra, sérkennslustjóra og leikskólastjóra.

· Útbýr einstaklingsáætlun fyrir barnið í samvinnu við aðra fagaðila.

· Fylgist með líðan og líkamlegu ástandi, skráir það og metur inngrip út frá því.

· Þegar barnið getur vegna einkenna heilkennis síns ekki verið í skólanum færast verkefni starfsmanns á heimili eða á sjúkrahús.

· Fylgir barni í iðju- og sjúkraþjálfun.

· Vinnur í nánu samstarfi með foreldrum/ forráðamönnum.

· Veitir foreldrum/forráðamönnum barns ráðgjöf og leiðbeiningar er lúta að fötlun þess.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

· Háskólapróf og starfsréttindi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi eða hafa lokið framhaldsnámi í sérkennslu.

· Áhugi á þjálfun, kennslu og velferð fatlaðra barna er skilyrði.

· Reynsla af starfi með fötluðum börnum er æskileg.

· Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.

· Samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

· Skipulagsfærni, stundvísi og reglusemi.

· Lausnarmiðuð hugsun og umbótafærni.

· Kunnátta í skyndihjálp.

· Gott líkamlegt atgervi.

· Ökuréttindi.

· Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sísý Malmquist í síma 867-7028 og á netfanginu sisymall@akureyri.is

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2024.

Til baka Senda grein