Gló Æfingastöð leitar að öflugum iðjuþjálfa í fjölbreytt starf
29.05.2026
Gló Æfingastöð óskar eftir að ráða öflugan iðjuþjálfa í fjölbreytt starf með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Um er að ræða 100% stöðu, en möguleiki er á minna starfshlutfalli ef þess er óskað.
Um okkur
Starfskjör og starfsandi
- Fjölskylduvænn vinnustaður með 36 tíma vinnuviku
- Góðir möguleikar á sveigjanleika í starfi
- Frábær starfsandi og öflugt starfsmannafélag - „Frú Margrét“ stendur fyrir skemmtilegum viðburðum allt árið
- Sterk endurmenntunarstefna, m.a. styrkir úr Starfsmenntunarsjóði og Starfsþróunarsetri BHM
- Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi BHM og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs, auk stofnanasamnings Gló stuðningsfélags við Iðjuþjálfafélag Íslands.
- Gefið er frí á launum milli jóla og nýárs
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta áskilin
Við hvetjum öll til að sækja um!
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026 í netfang gunnhildur@glofelag.isNánari upplýsingar veitir Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi Gló Æfingastöðvar í netfang: gunnhildur@glofelag.is eða síma 6950272.