Heilsuvernd Hjúkrunarheimili Akureyri

03.09.2025

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Á hjúkrunarheimilunum er rekin dagþjónusta, mötuneyti, þvottahús, auk þess sem meðal annars er boðið upp á iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, fjölbreytt félagsstarf og læknisþjónustu. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúanna.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Heilsuvernd Hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða iðjuþjálfa til starfa. Starfshlutfall er 80-90% í dagvinnu og um tímabundið stöðugildi út ágúst 2026 er að ræða með starfstöð á Hlíð. Við leitum eftir einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin/n að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks á góðum vinnustað. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við leggjum áherslu á jákvæðni og góð samskipti, lipurð í þjónustu og einlægan áhuga á starfi í þjónustu við aldraða.

Helstu verkefni og ábyrgð:

- Tekur þátt í umönnun og þjálfun skjólstæðinga

- Skipuleggur og tekur þátt í iðju skjólstæðinga í samvinnu við starfsfólk

- Nýtir viðeigandi matstæki, gerir færnimat og skipuleggur íhlutunaráætlun fyrir notendur og miðlar nauðsynlegum upplýsingum til annarra

- Stuðlar að og viðheldur sjálfræði og sjálfstæði skjólstæðinga og eflir þá til sjálfshjálpar

- Sækir um, veitir ráðgjöf, fræðslu og þjálfun á hjálpartæki til skjólstæðinga og starfsfólks

- Veita starfsfólki ráðgjöf varðandi einstaklingsíhlutanir

- Skráning og utanumhald um hjálpartæki Hjúkrunarheimilisins

- Taka viðtöl og annast umsóknarferli tengt þjónustu og aðstoð

- Umsjón með sértækumhópum og tryggja faglegt skipulag og eftirfylgd

Menntunar og hæfnikröfur:

- Háskólapróf í iðjuþjálfun

- Íslenskt starfsleyfi og löggilding frá Landlæknisembættinu

- Reynsla af störfum með öldruðum er æskileg

- Færni í stjórnun og skipulagningu

- Þolinmæði og sveigjanleiki

- Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum

- Sjálfstæði í starfi

- Góð íslenskukunnátta, skrifuð og töluð

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2025.
Sækja um hér

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Ráðið er í starfið óháð kyni. Í teyminu starfar öflugur hópur með fjölbreytta reynslu þar sem rík áhersla er lögð á uppbyggilegt samstarf og jákvæðan starfsanda.
Nánari upplýsingar veitir Harpa Dögg Sigurðardóttir, forstöðumaður iðju- og dagþjálfunar (harpadogg@hlid.is) og Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir, deildarstjóri iðju- og dagþjálfunar (johannamg@hlid.is).

Til baka Senda grein