Iðjuþjálfi - Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

30.04.2026

Langar þig að vinna í fjölbreyttu starfi, með reyndum og samhentum hópi iðjuþjálfa á fjölskylduvænum vinnustað?

Eir, Skjól og Hamrar leita að öflugum og metnaðarfullum iðjuþjálfum til starfa.

Hjá Eir, Skjóli og Hömrum starfar stór og samheldinn hópur iðjuþjálfa og aðstoðarmanna sem sinna fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem snúa að endurhæfingu og eflingu lífsgæða. Laust er í tvö stöðugildi iðjuþjálfa sem sinna m.a. skjólstæðingum á endurhæfingardeild, íbúum heimilanna og sérhæfðum dagþjálfunum.

Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Meta, skrá og útbúa íhlutunaráætlun
  • Skráning og skýrslugerð
  • Þjálfun: einstaklings- og hópaþjálfun
  • Meta þörf fyrir og sækja um hjálpartæki
  • Fræðsla og ráðgjöf fyrir heimilismenn/skjólstæðinga, aðstandendur og starfsfólk.
  • Þátttaka í þverfaglegum teymum
  • Þátttaka í fagþróun
  • Heimilisathuganir
  • Móttaka nema í iðjuþjálfunarfræðum frá HA

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
  • Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

Boðið er upp á:

  • Skemmtileg, fjölbreytt og spennandi verkefni.
  • 36 stunda vinnuviku.
  • Íþróttastyrkur
  • Öflugt starfsmannafélag.

Umsóknarfrestur:

Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar um starfið veitir

Guðrún Ása Eysteinsdóttir yfiriðjuþjálfi, gudrunasa@eir.is

Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Sækja um

Til baka Senda grein