Iðjuþjálfi hjá Vestmannaeyjabæ

25.03.2026

Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í afleysingu til eins árs. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Starfið felur í sér verkefni við að aðstoða einstaklinga að endurheimta, auka og/eða viðhalda vitrænni, líkamlegri og félagslegri getu.
Starfið skiptist í vinnu með notendum dagdvalar og stuðningsþjónustunnar. Boðið er upp á handleiðslu frá reyndum iðjuþjálfa sé þess óskað.

Helstu verkefni

  • Skipuleggja, ráðleggja og veita einstaklingsbundna þjónustu til notenda dagdvalar og stuðningsþjónustu
  • Gera einstaklingsáætlanir fyrir þjónustuþega dagdvalar sem byggjast á áhuga og getu einstaklingsins og miðar að því að vinna með styrkleika hans og auka lífsgæði
  • Útfæra dagskrá í samræmi við áætlunina og markmið og framfylgja henni
  • Ábyrgð og ráðgjöf á endurhæfingu og þjálfun einstaklinga til að endurheimta, auka og/eða viðhalda vitrænni getu, hreyfifærni, og draga úr verkjum eftir þörfum hvers og eins. Hér er átt við vitsmunalega, líkamlega og félagslega þjálfun
  • Meta þörf fyrir hjálpartæki hjá notendum dagdvalar og stuðningsþjónustunnar
  • Vera ráðgefandi fyrir aðra starfsmenn dagdvalar og stuðningsþjónustunnar
  • Þverfagleg teymisvinna

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun til starfsréttinda sem iðjuþjálfi og starfsleyfi
  • Reynsla af starfi með öldruðum og einstaklingum með heilabilun er kostur
  • Hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Sveigjanleiki og geta til þess að aðlaga sig að síbreytilegum aðstæðum og kröfum sem gerðar eru til starfsins
  • Almenn tölvukunnátta og færni á samfélagsmiðlum og möguleikum þeirra í starfi með notendum
  • Reynsla og þekking á notkun smáforrita og/eða þekking á annarri tækni til örvunar og hvatningar í daglegu lífi.
  • Áhugi á starfsþróun og nýsköpun og að vera reiðubúinn að leita nýrra leiða í starfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði

Nánari upplýsingar um starfið veitir Silja Rós Guðjónsdóttir deildarstjóri velferðaþjónustu, í síma 4882000, eða með tölvupósti á silja@vestmannaeyjar.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn ásamt kynninarbréfi, menntunar-og starfsferilsskrá með rafrænum hætti í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og iðjuþjálfafélag Íslands.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðningu er lokið.

Hvatning er til allra áhugasamra einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026

Til baka Senda grein