Iðjuþjálfi óskast á Mörk
Mörk hjúkrunarheimili leitar að iðjuþjálfa til starfa.
Mörk hjúkrunarheimili - Suðurlandsbraut 66, 108 RvkUmsóknarfrestur: 31.07.2026Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir einstakling sem býr yfir sjálfstæði, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum. Í starfinu felst m.a. mat á færni eintaklinga og persónumiðuð þjálfun sem miðar að því að efla athafnir daglegs lífs. Jafnframt felur starfið í sér þátttöku í þverfaglegu samstarfi, skráningu og skipulagningu þjónustu, auk þróunar á starfi iðjuþjálfa í Mörk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sérhæfð ráðgjöf
- Einstaklingmiðuð íhlutun og þjálfun
- Þátttaka í hópastarfi
- Þátttaka í RAI mati og skráningu
- Þáttaka í þverfaglegu samstarfi
- Notkun hjálpartækja, umsjón og kennsla
- Fræðsla til annara starfsmanna sem og heimilismanna
Hæfniskröfur:
- Viðurkennt háskólanám í iðjuþjálfun
- Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Greitt er eftir kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði. Sótt er um hér .
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri, tedda@grund.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!