Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
28.09.2026
Í geðþjónustu Landspítala starfa iðjuþjálfar í fjölbreyttum teymum og ólíkum þjónustueiningum, bæði í bráðaþjónustu og endurhæfingu. Við leitum að iðjuþjálfa sem vill bætast í hópinn og taka þátt í öflugu faglegu starfi. Starfsstöðvar eru við Hringbraut og á Kleppi.
Unnið er í dagvinnu og sveigjanlegur vinnutími er í boði. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt nánara samkomulagi og eru störfin laus nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Starf iðjuþjálfa gegnir stóru hlutverki í starfsemi geðþjónustu Landspítala í bráða- og endurhæfingarfasa. Við vinnum eftir hugmyndafræði líkansins um iðju mannsins (MOHO). Iðjuþjálfar eru í ýmsum sérhæfðum teymum, s.s. þunglyndis- og kvíðateymi, átröskunarteymi, áfallateymi og geðrofsteymi, auk sólarhringsdeilda, s.s. endurhæfingargeðdeild, réttar- og öryggisgeðdeild og meðferðargeðdeild Laugarási. Iðjuþjálfar í geðþjónustu leggja áherslu á að styðja einstaklinginn til þátttöku í daglegu lífi innan spítalans og í nærumhverfi hans. Íhlutun iðjuþjálfa byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun þar sem unnið er með vilja, eigin áhrifamátt, gildi og áhuga.
Í iðjuþjálfun á Landspítala starfa iðjuþjálfar, iðjuþjálfanemar og sérhæft aðstoðarfólk sem dreifast víða um spítalann. Störf okkar eru fjölbreytt og gefst starfsfólki tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu innan fagsins. Mikið faglegt starf er unnið og eru ýmsir möguleikar á endurmenntun. Við leggjum mikla áherslu á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða aðlögun.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sigurbjörgu Hannesdóttur, yfiriðjuþjálfa Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri íhlutunar
-
Skráning og skýrslugerð
-
Fræðsla og skipulagning starfa aðstoðarfólks iðjuþjálfa á deild/um
-
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
-
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
-
Þátttaka í fagþróun
Hæfniskröfur
-
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
-
Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfamerking: Heilbrigðisþjónusta, iðjuþjálfun, geðþjónusta, endurhæfing
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík, Kleppsgörðum, 104 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Hannesdóttir
Yfiriðjuþjálfi Landspítala
Tölvupóstur: sigurbhan@landspitali.is