Iðjuþjálfaþing - Ágripahefti
Það styttist í Iðjuþjálfaþing 2026 sem verður á Hilton Reykjavík þann 23. október næstkomandi. Við hefjum leikinn kl. 08:30 með innritun og kaffisopa. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 09:00 og er ekkert smá spennandi og fagleg!
Það er um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst því verðið hækkar í kr. 38.000 frá og með 12. október!
Skráning á þing og hátíðarkvöldverð fer fram hér
Hátíðarkvöldverðurinn verður í Gamla Bíói, Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík og kostar kr. 20.000. Húsið opnar stundvíslega kl. 19:00. Innifalið í miðaverði er fordrykkur, þriggja rétta máltíð, grín, gleði og gaman.
Dagskrá þingsins er hér og yfirlit yfir málstofur hér
Ágripahefti má finna hér
Við hlökkum til að sjá ykkur - þátttaka skiptir máli!
Ráðstefnunefnd IÞÍ